09.03.2012 13:04

Milliloft í húsið

Nú hafa staðið yfir framkvæmdir í Óslandi, húsnæði björgunarsveitarinnar.  Verið er að setja milliloft í eitt bil í tækjasalnum.  Þetta er gert til að auka gólfplássið í húsinu sem er orðið frekar lítið fyrir allan tækjakostinn.  Eins og flest annað sem viðkemur björgunarsveitinni er þetta verkefni unnið í sjálfboðavinnu og eru hér meðfylgjandi tvær myndir af duglegum verkamönnum við störf sín.





28.12.2011 10:32

Flugeldasala Geisla

Flugeldasala Geisla verður opin sem hér segir:

Miðvikudagur    28. desember   kl. 18 - 22

Fimmtudagur    29. desember   kl. 13 - 22

Föstudagur       30. desember   kl. 13 - 22

Laugardagur    31. desember   kl. 10 - 14

Föstudagur       6. janúar            kl. 12 - 15

Auðvitað verslum við flugeldana í heimabyggð og styrkjum með því starf björgunarsveitarinnar Geisla.

Hjálpið okkur að hjálpa öðrum!

22.12.2011 12:18

Nýtt tæki í Hafdísina

Enn hefur verið bætt við tækjakost Hafdísarinnar og nú er það tæki sem hjálpar okkur að skygnast undir yfirborð sjávar.  Tækið sem um ræðir er einskonar dýptarmælir sem vinnur á svo hárri tíðni að hann tekur nánast ljósmynd af botninum ein og sést á myndinni hér fyrir neðan sem var tekin í fyrstu prufuferðinni með tækið.  Myndin er af slippnum sem skagar fram í sjóinn fyrir framan gömlu bátasmiðjuna hans Gulla í Odda.

Með tækinu er hægt að fá mjög nákvæma staðsetningu á hlutum sem eru á botninum auk þess sem hægt er að mæla stærð þeirra.

23.11.2011 10:08

Útkall

22. nóvember kl.01.12.

Geisli fékk annað F1-Rauður útkall vegna báts sem var strandaður, nú í Stöðvarfirði.  Um var að ræða línubátinn Dóra GK-42 sem hafði siglt upp í fjöru í sunnanverðum firðinum.  Björgunarbáturinn Hafdís var fyrstur björgunaraðila á vettvang en línubáturinn Von var komin á vettvang áður.  Ekki var bráð hætta á ferðum þar sem báturinn fór nánast á þurrt að framan og því tiltölulega auðvelt fyrir áhöfnina að komast í land.  Fljótlega tókst að koma línu á milli Hafdísarinnar og Dóra og reyndi Hafdísin að draga hann á flot en án árangurs.  Var þá Vonin fengin til að reyna slíkt hið sama og enduðu þær tilraunir með því að dráttartaugin slitnaði.  Því var ákveðið að bíða næsta flóðs sem var um hádegisbil. Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík mætti einnig á vettvang með slöngubát og björgunarskipið Hafbjörg var ræst út frá Neskaupstað. 

Björgunarsveitarmenn hófust svo handa um kl.10.00 að undirbúa að koma að koma bátnum á flot og var dælum komið um borð í Dóra auk þess sem dráttarlínu var komið út í björgunarskipið Hafbjörgu.  Björgunarsveitirnar á Fáskrúðsfirð, Breiðdalsvík og í Neskaupstað unnu saman að þessu verkefni.  Vel gekk að koma bátnum á flot og fóru kafarar frá Djúpavogi undir bátinn og þéttu hann með íslensku smjöri og tréfleigum áður en hann var dreginn að bryggju á Stöðvarfirði.

 Mynd af strandstað.

Myndin er fengi af http://emilpall.123.is

21.11.2011 21:30

Útkall

21. nóvember 2011.
Björgunarsveitin fékk útkall F1 RAUÐUR kl.17:46 vegna báts sem hafði strandað í sunnanverðum Fáskrúðsfirði.  Björgunarbáturinn Hafdís var komin í sjóinn 8 mínútum síðar og hélt af stað út fjörðinn í átt að strandstaðnum sem reyndist vera neðan og innan við Víkurgerði.  16 mínútur tók að sigla að bátnum sem var þá kominn á flot.   Í ljós kom að ekki hafði komið leki að bátnum þrátt fyrir að hann hefði siglt á talsverðri ferð á klettótta strönd.

Hafdísin fylgdi bátnum til hafnar á Fáskrúðsfirði.

06.11.2011 17:37

Útkall

6. október 2011
Kl.11:53 í morgun var björgunarsveitin kölluð út vegna 40 feta frystigáms sem hafði fokið í sjóinn á Stöðvarfirði.  Aftaka veður var hér fyrir austan á þessum tíma og því var farið með Hafdísina landleiðina yfir á Stöðvarfjörð og hún sjósett þar.  Gámurinn hafði rekið upp í fjöru áður en björgunarsveitin var komin á vettvang og þótti ekki ráðlegt að draga hann á flot þar sem hann var orðinn talsvert skemmdur. 
Nú er það eiganda gámsins að fjarlægja hann úr fjörunni.
Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík og Landhelgisgæslan tóku einnig þátt í þessum aðgerðm.
Þess má geta að á þessu eina og hálfa ári sem Hafdísin hefur verið í þjónustu björgunarsveitarinnar hefur hún farið í 10 útköll.

06.11.2011 08:15

Útkall


Björgunarsveitin fékk aðstoðarbeiðni stuttu fyrir kl. 19.00 í gærkvöldi vegna manns sem var tíndur í Stöðvarfirði.  Maðurinn, sem mun vera steinasafnari, hafði farið að líta eftir steinum en skilaði sér ekki til baka á tilskyldum tíma.  
Maðurinn skilaði sér svo til byggða af sjálfsdáðun stuttu eftir að björgunarsveitin var kölluð út.  Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík hafði einnig verið kölluð út vegna leitarinnar.

03.11.2011 21:54

Neyðarkarlinn

Björgunarsveitin er nú að selja Neyðarkarlinn, en sala á honum er orðin mikilvægur þáttur í fjáröflun sveitarinnar.  Okkur langar að biðja ykkur, kæru sveitungar, að taka vel á móti sölumönnum karlsins og með því hjálpa okkur að hjálpa öðrum.  Hér fyrir neðan er stutt myndband frá síðustu æfingarferð Hafdísarinnar.

05.09.2011 12:20

Útkall í Dalsá


Föstudaginn 2. september fékk björgunarsveitin útkall vegna bifreiðar sem hafði lent í vandræðum í Dalsá, rétt við brúnna.  Bifreiðin var farin að færast niður eftir ánni, en miklir vatnavextir voru þetta kvöld.  Nokkurn tíma tók að koma línu í bifreiðina en að það hafðist þó að lokum og var hún spiluð á þurrt.

10.08.2011 15:39

Trilla dregin til hafnar


Í morgun um kl.08.30 barst björgunarsveitinni aðstoðarbeiðni vegna smábáts sem var vélarvana um 8 mílur austan við Gvendarnes.  Báturinn var sóttur á björgunarbátnum Hafdísi og var komið með hann til hafnar á Fáskrúðsfirði rétt rúmlega 12:00.  Blíðuveður var á miðunum og engin hætta á ferðum.

28.05.2011 11:09

Starfsárið 2010

Hér er myndband þar sem farið er yfir síðasta starfsár sjóflokksins.

28.05.2011 11:03

Sædís landar kari

Tveir félagar úr sjóflokknum voru við æfingar á minni bát sveitarinnar, Sædísi, þegar þeir rákust á fiskikar hér út með firðinum.  Þeir lönduðu að sjálfsögðu aflanum enda geta kör á reki auðveldlega gatað hraðskreiða fiskibáta ef þeir lenda á þeim.


05.05.2011 01:31

Útkall


Myndin tengist fréttinni ekki

Í dag, 4. maí fór sjóflokkurinn í útkall þar sem fiskibátnum Andreu var komið til hjálpar.  Andrea hafði orðið fyrir vélarbilun hér yst í firðinum, frekar nálægt landi.  Skipherrann á Andreu, Agnar Sveinsson, hafði látið ankeri falla og beið björgunar með stakri ró.  Þess má geta að Hafdís var komin í sjóinn, 8 mínútum eftir að boð voru send á áhöfn hennar og var hún komin að Andreu 15 mínútum síðar.  Aðstoðin gekk vel og komu bátarnir til hafnar skömmu eftir kl.15:30.



02.05.2011 10:24

Sjóflokkurinn á æfingu

Sjóflokkur björgunarsveitarinnar var á sameiginlegri æfingu björgunarsveita á Austfjörðum um helgina.  Æfð voru viðbrögð við ýmsum uppákomum t.d. dælingu úr bát sem var við það að sökkva, strandleit, leitarferlar voru æfðir auk þess sem skipulag leitar á sjó sem margir koma að var æfð.  Björgunarsveitin Geisli þakkar félögum okkar í Neskaupstað fyrir góða æfingu og höfðinglegar móttökur.

10.04.2011 09:49

Aðalfundur Geisla

Aðalfundur björgunarsveitarinnar Geisla verður haldinn í Óslandi mánudaginn 11. apríl kl.20.00.

Dagskrá:

1.  Formaður setur fundinn.

2.  Kosning starfsmanna fundarins (fundarstjóra & ritara).

3.  Skýrsla formanns.

4.  Ársreikningur.

5.  Unglingadeildin.

6.  Hafdís SU - staða verkefnisins.

7.  Kosning formanns.

8.  Kosning stjórnar.

9.  Kosning fulltrúa á Landsþing S.L. 2011.

10. Kosning ábirgðarmanna tækja (flokkstj. sjóflokks / bílafl.) 11. Inntaka nýrra félaga.

12. Önnur mál.

 

Félagar gamlir sem nýjir hvattir til að mæta og taka þátt í skemmtilegum fundi.

 

   Stjórnin

Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 7
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 14578
Samtals gestir: 6981
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 00:26:01